Innlendar fréttir

Bikarhelgin framundan – Viðtöl við fyrirliða úr hverju liði.

Bikarhelgin er nú handan við hornið og er spenningurinn mikill í öllum liðunum sem taka þátt. Við fengum tækifæri til að spyrja fyrirliða úr hverju liði nokkrar spurningar og fá innsýn í hvernig þeir sjá fyrir sér helgina. Hér eru svörin við nokkrum lykilspurningum sem við spurðum.

Álftanes KVK – Fyrsti Bikar og mikil spenna

Fyrirliði Álftanes hún Nicole Hannah Johansen lýsir stemningunni í liðinu fyrir komandi bikarhelgi sem mjög spennandi. “Það er mikill spenningur hjá öllum í liðinu fyrir þessari helgi” segir hún. Nicole segir að varnarleikur HK sé ótrúlega öflugur. „Ég myndi segja að varnarleikurinn þeirra sé mjög sterkur og getur reynst okkur erfitt,“ útskýrir hún. En hvernig verður tónlistin í klefanum? “Rave de favela – Major Lazer,” svaraði Nicole, og bætir við að það gefi liðinu orku og stuð.

Við spurðum einnig hvort þetta væri hennar fyrsti bikar. “Ég veit ekki hversu oft, en síðast þegar ég komst í bikar var 2016 með Stjörnunni” sagði Nicole. Þetta er í annað sinn sem Álftanes kemst í bikar og megum við búast við að sjá “hörku baráttu, stuð og stemningu” segir hún.

HK KVK – Mjög spenntar en yfirvegaðar

Líney Inga Guðmundsdóttir fyrirliði HK lýsir því að stemningin í liðinu sé mjög góð. “Við erum mjög spenntar fyrir helginni og hlökkum til að spila aftur á dúknum og í kringum alla sem koma að hvetja okkur” segir hún.

Líney segir að HK hafi ekki eitthvað eitt ákveðið lag sem þau spila alltaf í klefanum. “Við búum alltaf til playlista sem allir hafa aðgang á í byrjun tímabils og notum hann alltaf í klefanum fyrir leik. Hann kemur okkur í gírinn,” segir hún.

Hvað má fólk búast við að sjá frá HK á vellinum? “Mikla gleði en á sama tíma einbeitingu. Við ætlum að undirbúa okkur vel og vera vel peppaðar en samt yfirvegaðar. Erum allar mjög spenntar!” segir Líney.

Hvernig er að keppa bikar á heimavelli? “Okkur finnst stemmningin breytast alveg í Digranesi eftir að dúkurinn er kominn og stuðningsmenn eru mættir að styðja liðin sín. Auðvitað erum við vanari að keppa og æfa þarna, en þetta er bikar, þá breytist einhvern veginn stemmningin” segir Líney.

KA KVK – Hungraðar í bikarinn í ár

Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir fyrirliði KA segir að stemningin í liðinu sé mjög góð fyrir helgina. “Stemningin er rosalega góð hjá okkur. Þetta er að okkar mati skemmtilegasta helgi ársins, þannig mjög mikil eftirvænting og spenna meðal hópsins” segir hún.

Lovísa segir að helstu styrkleikar mótherjans séu sérstaklega sterk vörn og blokk. “Þetta hafa oft verið hörku leikir þegar við mætum Aftureldingu og oft erfitt að sjá fyrir um hver ber sigur úr bítum. En þær hafa mjög góða blokk sem hefur reynst okkur erfið, einnig eru þær mjög sterkar í vörn sem er gríðarlega góður eiginleiki að hafa inn í bikarinn” segir hún.

Þegar spurt var um tónlistina í klefanum fyrir leiki, sagði Lovísa: “Það er ekkert ákveðið lag sem við hlustum alltaf á, en við bjuggum til mjög góðan playlista saman fyrir tímabilið og erum duglegar að taka út og setja inn ný lög það sem líður á tímabilið. En núna erum við helst að hlusta á ‘Stara.'”

Hvað geta stuðningsmenn búist við að sjá frá KA á vellinum? “Fólk má búast við að sjá okkar helsta einkenni sem er gríðarlegur liðsandi. Það hefur komið okkur gríðarlega langt síðustu ár og vil ég meina að sé helsta einkenni KA. Við erum mjög hungraðar í bikarinn í ár, þannig barátta er okkur einnig helst í huga,” segir Lovísa.

Þegar við spurðum hvort þetta væri fyrsti bikar hennar, sagði hún: “Þetta er í fimmta skiptið sem ég er að keppa í bikarhelginni, sem eru algjör forréttindi. Mín uppáhalds minning er þegar við unnum Bikartitilinn árið 2022, það er alltaf skemmtilegast að vinna spennandi leiki og sá leikur fór í oddahrinu. En það jafnast fátt við það að vera með stelpunum í KA fyrir sunnan á bikarhelginni, er alltaf ótrúlega gaman.”

Afturelding KVK – Tilbúnar í skemmtilegustu blakhelgi ársins

Velina Apostolova fyrirliði Aftureldingar segir að stemmningin fyrir helginni sé mjög góð „Stemningin er mjög góð og allir spenntir, enda skemmtilegasta blakhelgi ársins framundan!“ segir Velina.

Þegar spurt var um helstu styrkleika mótherjans, þá bendir Velina á að KA hafi nokkra mjög sterka leikmenn og mikinn baráttuanda. „KA eru með nokkra mjög sterka leikmenn og mikinn baráttuanda sem getur verið erfitt að glíma við“.

Þegar kemur að eigin styrkleikum, telur Velina að þeirra helsti styrkur liggi í reynslu og breidd hópsins. „Við erum með nokkuð reynslumikið lið og höfum verið að spila á breiðum hópi í vetur, svo það eru allir klárir í slaginn. Við erum vel undirbúnar og komum ákveðnar inn í undanúrslitin“ segir hún.

Er ákveðin tónlist sem aldrei má vanta í klefanum?. „Já, að sjálfsögðu, Mosó með EthyOne og Dóra DNA!“ segir Velina. Hverju mega áhorfendur búast við að sjá? „Leikgleði og baráttu!“ svarar Velina.

KA KK – Hamingja og ástríða

Zdravko Kamenov fyrirliði KA segir að liðið sé einbeitt og tilbúið fyrir komandi bikarhelgi. “We are focus and looking forward for it” segir Zdravko. “The qualification to semifinals together with good performances in the last games give us confidence for the game on Thursday.”

Zdravko talar einnig um mótherjanna og segir að sameiginlegt með öllum liðum sé mikil hvöt til að ná langt í bikarnum. “The motivation of being in the cup will be the main strength of each one of the teams in the competition.” segir Zdravko. KA spilar alltaf fyrir leiki: “Áfram KA” segir hann.

Þegar við spurðum um uppáhalds minningu frá bikarhelginni svarar hann “The set&setting of the whole event. Most of us still need to create a favourite moment in this cup”. Fólk ætti að búast við að sjá frá KA á vellinum: “Passion, happiness, respect and humility during our game (or games)” segir Zdravko.

Þróttur Reykjavík KK – Stefna hátt

Mateusz Rucinski þjálfari og leikmaður Þróttar er spenntir fyrir komandi bikarhelgi. “The team feels good, of course there are minor injuries but that is normal at this stage of the season” segir hann og bætir við: “We hope that everyone will be ready and we will show our best side at the tournament.”

Mateusz segir að öll 4 liðin séu mjög sterk og segir “this will certainly be a very interesting tournament for the fans”. “HK is a very young team that will definitely show its good side on their home court, and they have a very good period behind them” segir hann. “KA is an experienced team, the leader of the table” Mateusz segir að þeir munu leggja áherslu á að stoppa kannt smassara Aftureldingar “Afturelding have very good wingers and it will definitely be a priority for us to try to stop their attacks.”

Þegar við spurðum um tónlistina í klefanum, nefnir hann: “Hermes House Band – Country Roads”. Þeir sjálfir leggja áherslu á það að vinna bikarinn. “We will definitely want to show our good side and win the tournament” segir Mateusz.

Afturelding KK – Liðsheildin Í hápunkti

Atli Fannar Pétursson fyrirliði Aftureldingar lýsir því að stemningin í liðinu sé mjög góð. “Við erum allir mjög spenntir að taka þátt í bikarhelginni eftir að hafa misst af henni í fyrra” segir Atli.

Hann nefnir að helsti styrkleiki mótherjans sé varnarlína þeirra og blokkin. “KA menn eru gríðarlega sterkir í blokk og vörn, sem gerir það að verkum að það reynir töluvert á þolinmæðina að spila við þá” segir Atli. Þegar við spurðum um styrkleika Aftureldingar sjálfs, var svarið einfalt: “Liðsheildin, við erum með sterka heild og vinnum vel saman.” og megum við búast við “góðri skemmtun, við ætlum allavega að reyna að njóta og hafa gaman á þessari geggjuðu helgi.” segir Atli.

Atli bætir við að tónlistin í klefanum fyrir leiki sé oft mjög misjöfn, en það sé Kristinn Benedikt dj sem velur lögin: “Yfirleitt er það eitthvað þýskt rapp eða techno, en það kemur manni alltaf í gír.”

HK KK – Allir fullir af orku fyrir helgina

Arnar Birkir Björnsson fyrirliði HK segir að það sé mikil ánægja að komast aftur í höllina eftir að hafa setið úti í kuldanum síðustu tvö tímabil. “Það er því mikil spenningur í liðinu, sérstaklega þar sem það eru þó nokkrir leikmenn sem hafa aldrei fengið að upplifa bikarhelgina sem leikmenn áður” sagði Arnar. Þetta hefur skapað háa stemningu og mikla eftirvæntingu innan liðsins, og allir eru fullir af orku fyrir helgina.

Þegar við spyrjum um styrkleika mótherjanna sem er Þróttur Reykjavík útskýrir Arnar að Þróttur R. inniheldur marga sterka erlenda leikmenn með mikla reynslu. “Þróttur R. hefur ekki haft karlalið í efstu deild í dágóðan tíma, þannig þeir eru mjög hungraðir í að sanna sig á þessu endurkomu tímabili” segir Arnar.

Við spurðum einnig um tónlistina sem spiluð er í klefanum fyrir leik. Arnar viðurkenndi að hann væri “orðin svo miðaldra að ég tek ekki mikið eftir tónlistinni sem verið er að spila.” og bætti þó við að Hermann hafi yfirumsjón með tónlistinni.

Þar sem liðið hefur ekki möguleika á að verða deildarmeistarar eða taka þátt í úrslitakeppninni, útskýrði Arnar að þessi leikur væri þeirra eina tækifæri til að vinna titil á þessu tímabili. “Við ætlum því að leggja allt undir, en við erum samt meðvitaðir um að við erum með ungt lið og þurfum því að nálgast leikinn af yfirvegun” sagði Arnar.

Arnar langaði einnig að bæta við: “Mig langar síðan til að bæta einu við, og það er að hvetja okkar fólk til að mæta á leikinn. Það getur hjálpað liðinu gríðarlega að finna fyrir stuðningi frá stúkunni. Sjáumst í höllinni!” segir Arnar.

Þessi helgi lofar góðu

Bikarhelgin lofar spennandi leikjum og það verður gaman að sjá hvaða lið mun taka titilinn heim. Hvort sem það verður nýtt lið sem nær sínum fyrsta bikar eða reynslumikið lið sem heldur áfram að sýna styrk sinn er ljóst að allir leikmenn og þjálfarar hafa miklar væntingar og eru tilbúnir að leggja hart að sig fyrir helgina.

Fimmtudagur 6. mars 2025 undanúrslit karla

Þróttur Reykjavík vs HK kl 17:00

Afturelding vs KA kl 19:30

Föstudagur 7. mars 2025 undanúrslit Kvenna

KA vs Afturelding kl 17:00

HK vs Álftanes kl 17:00

Laugardagur 8. mars 2025 úrslit karla og kvenna

Úrslit karla kl 13:00

Úrlsit kvenna kl 15:30

Sjáumst í Digranesinu um helgina!!!!