Erlendar fréttir

Holte danskir meistarar ósigraðar eftir tímabilið

Þriðjudaginn 22. apríl tók Holte, þar sem að hún Sara Ósk spilar, á móti ASV Elite á heimavelli í þriðja leik úrslitaeinvígisins um danska meistaratitilinn. Holte hafði unnið fyrstu tvo leikina og gat með sigri tryggt sér titilinn.

Leikurinn byrjaði spennandi með því að liðin skiptust á stigum. Um miðja hrinuna tók Holte yfir og náði 22-12 forystu. Þær kláruðu hrinuna örugglega 25-14.

Önnur hrina hófst á svipuðum nótum, jöfn og spennandi, þar til ASV tók á sprett og náði sex stiga forskoti, 10-16. Holte svaraði með flottum kafla og minnkaði muninn í 19-21, en ASV hélt út og vann hrinuna 21-25.

Í þriðju hrinu voru það ASV sem héldu undirtökunum frá upphafi. Þrátt fyrir baráttu Holte hélt ASV forystunni og kláraði hrinuna 22-25.

Þar með var Holte komið með bakið upp við vegg og þurfti sigur í næstu hrinu til að halda titilvoninni lifandi. Þær svöruðu kallinu með miklum krafti og komust í 12-7 forystu í fjórðu hrinu. Þrátt fyrir að liðin skiptust á stigum eftir það, hélt Holte öruggri forystu og vann hrinuna 25-17.

Oddahrinan var æsispennandi. Holte leiddi 8-6, en ASV jafnaði í 8-8 og liðin skiptust á stigum upp í 12-12. Þá setti Holte í lás, tók þrjú stig í röð og kláraði leikinn með 15-12 og tryggðu sér þar með meistaratitilinn.

Með sigrinum tryggði Holte sér danska meistaratitilinn annað árið í röð og ósigraðar þetta tímabilið og í tuttugasta skiptið í sögu félagsins. Liðið hefur nú alls 38 sinnum endað á pallinum í dönsku úrslitakeppninni.

Við óskum Söru Ósk og Holte konum innilega til hamingju með titilinn!