Þriðjudaginn 15. apríl héldu Holte konur, þar sem Sara Ósk leikur, til Aarhus þar sem þær mættu ASV Elite í öðrum leik úrslitaeinvígisins um danska meistaratitilinn.
Um 350 áhorfendur mættu í höllina og var mikil stemning og spennustigið hátt. Stuðningsmenn ASV létu heyra í sér og voru svo sannarlega sjöundi maðurinn á velli ASV.
Fyrir leikinn var tilkynnt Dream Team úrvalsdeildar kvenna 2024/25, þar sem Holte átti þrjá leikmenn í liði ársins:
- Clara Windeleff – kanntur og MVP
- Helena Elbæk – díó
- Amalie Lachenmeier – miðja
Tvö verðlaun fóru einnig til einstaklinga úr Farum VK, sem er hluti af klúbbnum Holte.
- Veronica Kjær var valin efnilegasti ungi leikmaðurinn
- Skafte Herskind var útnefndur þjálfari ársins

Leikurinn byrjaði jafn en ASV náði fljótlega góðu forskoti, 11-6, og síðar 17-8. Holte gafst ekki upp og minnkaði muninn jafnt og þétt. ASV hélt þó haus og kláraði hrinuna 25-22.
Önnur hrina var jafnari í byrjun, þar sem liðin skiptust á að skora. Holte náði svo góðu flugi og komst í 15-20 forystu. ASV reyndi að svara en Holte kláraði hrinuna 20-25 og jafnaði leikinn í 1-1.
Þriðja hrina byrjaði einnig jöfn en ASV tók smám saman völdin og komst í 11-6. Holte minnkaði muninn í 11-10, en ASV svaraði og komst í 16-12. Holte sótti aftur og minnkaði í 17-16. Hrinan var spennandi allt til loka en ASV hafði betur og vann 25-22.
Í fjórðu hrinu komu Holte konur ákveðnar inn og náðu fljótt 7-11 forystu. Þær héldu áfram að ýta á og leiddu bæði 10-17 og 12-19. Þá sögðu ASV hingað og ekki lengra og svöruðu fyrir sig og skoruðu 11 stig í röð og komust yfir 21-19. Hrinan var jöfn eftir það og endaði í upphækkun. ASV hafði tækifæri á að klára leikinn í stöðunni 25-24, en Holte neitaði að gefast upp og tryggði sér hrinuna 27-29 eftir mikinn spenning.
Oddahrinan hófst vel fyrir Holte sem komst í 4-7 forystu. ASV jafnaði í 7-7 en Holte setti í annan gír, náði 9-14 og kláraði svo hrinuna 9-15.
Holte leiðir þar með 2-0 í leikjum og á nú tækifæri á að tryggja sér danska meistaratitilinn á heimavelli þriðjudaginn 22. apríl.