KA menn fengu Þrótt Reykjavík í heimsókn um helgina í fyrsta leik liðanna í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn. KA menn byrjuðu leikinn gríðarlega vel og náðu fljótt upp afgerandi forystu. Gestirnir höfðu lítil svör við góðum sóknar og varnarleik heimamanna þar sem hávörnin var virkilega vel stillt og því auðveldara að ná að verjast boltunum. Einnig pressuðu þeir vel í uppgjöfum og því erfitt fyrir gestina að taka fullkomið á móti og auðveldaði það KA talsvert við að lesa leikinn. KA vann hrinuna nokkuð örugglega 25-17.
Önnur hrina byrjaði mjög svipað og sú fyrsta þar sem KA menn náðu fljótt upp forskoti. En ólíkt fyrstu hrinu voru Þróttarar ekki lengi að ná að jafna leikinn á ný og komast yfir í stöðunni 7-8 og tóku KA menn þá leikhlé. Hrinan hélt áfram að vera jöfn og spennandi þangað til í stöðunni 11-11 þá skiptu KA algjörlega um gír og náðu ákveðnu valdi á hrinunni og komust í stöðuna 17-12. Þá var ekki aftur snúið og heldu þeir áfram sömu siglingu og silgdu hrinunni inn 25-19.
Líkt og í fyrstu tveimur hrinunum voru KA menn með yfirhöndina strax í byrjun hrinunnar. Þeir héldu því út alla hrinuna og unnu hana 25-17 líkt og hrinu eitt. KA vann því leikinn nokkuð þæginlega 3-0 og eru því komnir 1-0 yfir í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.
Stigahæstur í liði KA manna var Miguel Mateo með 18 stig og þar á eftir var Oscar Fernández með 14 stig. Stigahæstur í liði gestanna var Mateuz Klóska með 17 stig og þar á eftir var Karol Kubisz með 6 stig
Næsti leikur liðanna er næstkomandi fimmtudag í Laugardalshöll klukkan 14:00.