Innlendar fréttir

KA konur Íslandsmeistarar fjórða árið í röð

KA fengu Völsung í heimsókn í þriðju viðureign liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í gær. Með sigri gat KA tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn svo pressan var öll á Völsungi. Sóldís Júlía byrjaði í uppgjöf fyrir heimakonur og pressaði þeim virkilega vel og gerði það að verkum að KA byrjaði hrinuna mun betur en gestirnir. Um miðja hrinu komust Völsungar loksins í gang og KA í vandræðum í móttöku og minnkuðu þær muninn í 12-8. En þá byrjar móttakan hjá Völsung að bresta og KA nær góðu forskoti á ný, 16-9. Í stöðunni 21-11 gerir Völsungur tvöfalda skiptingu og inná koma Kristey og Inga. Kristey var með frábæra innkomu í hrinunni og nær að minnka muninn niður í 22:16 en það var heldur seint og KA vann hrinuna 25-21.

Önnur hrina svipar til fyrstu þar sem KA konur byrja betur og í stöðunni 9-5, fyrir KA, tóku gestirnir leikhlé eftir of mörg mistök í sóknarleiknum þeirra. Leikhléið heldur betur kveikti í Völsungi og skoruðu þær hvorki meira en minna en 11 stig í röð með Sigrúnu Önnu í uppgjöf og komust í 9-16. Varnarleikur gestanna var hreinlega til fyrirmyndar og móttakan hjá gestunum ekki upp á marga fiska sem gerði KA konum erfiðara fyrir í sókninni. Þá ákvað Mateo að nú væri komið nóg og tók sitt annað leikhlé. Lovísa fer þá í uppgjöf og með talsvert að mistökum hjá gestunum minnkuðu KA muninn niður í 3 stig, 13-16. Gestirnir voru þó staðráðnar í því að vinna þessa hrinu og unnu hana með mikilli baráttu og vel útfærðum sóknarleik, 18-25. Staðan því orðin 1-1

Þriðja hrina byrjaði með miklum krafti og mikill baráttu andi í báðum liðum. Völsungar voru þó með yfirhöndina í byrjun hrinunnar og í stöðunni 6-10, fyrir Völsungi, tekur Mateo sitt fyrsta leikhlé í hrinunni. Stuttu eftir það kemst KA yfir í fyrsta skiptið í hrinunni 13-12. Auður var með flotta pressu úr uppgjöfum og erfitt fyrir Völsung að sækja úr þeim og KA byggði enn meira á forskotið. Ekki var mikið sem gekk upp hjá gestunnum í hrinunni og komust KA konur í stöðuna 20-13. Völsungur náði þó að klóra örlítið í bakkan undir lok hrinunnar en KA vann hana samt sem áður nokkuð þæginlega 25-17.

KA náðu fljótt að byggja upp forskot í fjórðu hrinu og greinilegt að þær ætluðu sér að vinna titlinn í kvöld miðað við framistöðuna og ákveðnina í hrinunni. Allt gekk upp hjá KA í þessari fjórðu hrinu og unnu þær hana virkilega sannfærandi 25-14 og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð og fullkomnuðu þrennuna þar sem þær voru líka deildar- og bikarmeistarar á tímabilinu.

Að loknum leik voru veitt verðlaun fyrir MVP (most valuable player) úrstilakeppninnar og varð það Julia Bonet, leikmaður KA, sem hlaut þau verðlaun. Við hjá blakfréttum óskum henni ásamt KA liðinu innilega til hamingju með titilinn.