Annar leikur í úrslitum um íslandsmeistaratitilinn fór fram í Laugardalshöll. Fyrsta hrina fór mjög spennandi af stað þar sem Þróttur leiddi framan af þar til KA jafnaði í 15-15 og komst svo flótt í tveggja stiga forustu 15-17. KA sleppti ekki takinu á hrinunni eftir það og kláruðu þeir fyrstu hrinuna af krafti 20-25.
Þróttur byrjaði aðra hrinuna vel og leiddu 13-7. KA átti fá svör við öflugum sóknar leik heimamanna sem leiddu 18-11 þegar gestirnir tóku leikhlé. KA sá aldrei til sólar í hrinunni sem Þróttur kláraði örugglega 25-15.
Þróttur byrjaði þriðju hrinuna betur og leiddu framan af þar til þeir náðu að byggja upp fimm stiga forustu í stöðunni 14-9. KA gerði þá vel og gáfu í þar til þeir jöfnuðu loks í stöðunni 19-19. Við tók spennandi endasprettur sem endaði með 23-25 sigri KA þegar Mateus Klóska sló seinasta boltan út.
Aftur byrjaði Þróttur betur og náðu snemma yfirhöndinni í hrinunni. Heimamenn leiddu 17-13 þegar gestirnir tóku sitt fyrsta leikhlé. Lítið gekk upp hjá KA sem tók sitt annað leikhlé í stöðunni 21-17. Þróttur héldu áfram af fullum krafti og kláruðu fjórðu hrinuna sannfærandi 25-18.
KA byrjaði oddahrinuna af krafti og sóttu áttunda stigið með hávörn í stöðunni 4-8 þegar liðinn skiptu um vallarhelminga. KA leiddi áfram 6-10 þegar heimamenn tóku sitt fyrsta leikhlé. Þróttur reyndi aftur að stilla saman strengi þegar þeir tóku sitt seinna leikhlé í stöðunni 6-12. Þróttur náði að vinna sig aftur inn í hrinuna en tókst ekki að jafna. KA kláraði hrinuna með hávörn 12-15 og leiðir þar með 2-0 í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.