Innlendar fréttir

KA komnar 2 – 0 yfir og geta orðið Íslandsmeistarar á þriðjudaginn

Screenshot

Þann 16. apríl mættust KA og Völsungur í 2 leik um Íslandsmeistara titilinn.

Leikurinn byrjaði mjög jafnt og voru liðin alveg jöfn þanga til í 17 – 17, þá náði Völsungur mikilvægu forskoti í 21- 18 og héldu því forskoti þanga til í 23 – 19. Þá náði Julia mikilvægum stigum fyrir KA og kom þeim í 23 – 23 og unnu svo KA hrinuna 23 – 25 eftir mikil viðsnúning.

Önnur hirna byrjaði svipuð og sú fyrsta en náði KA núna að taka fram úr í 14 – 14, KA náði að koma sér í 18 – 24, þá náði Völsungur tveimur stigum í röð en stoppuðu KA þær strax og unnu hrinuna 18 – 25.

KA náði núna mjög snemma í hrinunni forskoti og voru komnar í mjög góða stöðu í 10 – 20, Völsungur náði að minnka muninn aðeins en dugði það ekki til og vann KA hrinuna 19 – 25 og því með leikinn 0 – 3.

KA eru því komnar 0 – 2 yfir í leikjum og eiga möguleikann á að verða Islandsmeistarar á þriðjudaginn á heimavelli.

Stigahæst hjá Völsung var hún Kristine Teivane með 13 stig og stigahæst hjá KA var hún Julia Bonet Carreras með 23 stig.