Í gærkvöldi tóku KA menn á móti Þrótti Reykjavík í þriðja leik liðanna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér titilinn og voru KA menn fyrir leikinn komnir í nokkuð góða stöðu þar sem þeir eru búnir að vinna síðustu tvo leiki og þar með 2-0 yfir í einvíginu.
Fyrsta hrinan fór vel af stað þar sem mikið var um góðar hávarnir hjá báðum liðum og hrinan var virkilega jöfn. Fljótt fóru KA menn samt sem áður að síga fram úr gestunum, þó mikið var um langar skorpur og frábærar varnir hjá báðum liðum þá féllu boltarnir oftar en ekki með heimamönnum. Með frábærri baráttu og seiglu náðu þróttarar að jafna og gott betur en það því þeir komast yfir í stöðunni 14-15 og KA tóku þá leikhlé. Alexander í liði Þróttar heldur áfram að pressa vel í uppgjöfunum. KA nær loksins að losa stöðuna í stöðunni 15-16. Spilið hjá báðum liðum hélt áfram að vera virkilega gott og liðin skiptust á stigum. Hrinan varð svo spennandi að hún fór í upphækkun þar sem KA menn höfðu betur að lokum 26-24 og átti Gísli Marteinn stóran þátt í sigri KA í hrinunni þar sem hann skoraði hvorki meira né minna en 7 stig.
KA menn byrjuðu aðra hrinu betur, en gestirnir voru aldrei langt undan. Um miðja hrinu gáfu KA menn enn meira í og náðu upp allt að 6 stiga mun í stöðunni 13-7. Þróttarar voru þó ekki lengi að svara því og náðu að minnka muninn í stöðuna 13-11 þegar KA menn tóku leikhlé. Hrinan hélt áfram með sama skapi þar sem KA var alltaf með annan fótinn á undan gestunum. Undir lok hrinunar settu KA menn í næsta gír og spiluðu virkilega skynsaman leik en þá ákváðu þróttur að gera slíkt hið sama og náðu að minnka muninn í 23-21. En það var ekki nóg og unnu KA hrinuna 25-21.
Þriðja hrina spilast eiginlega akkurat öfugt við þá fyrstu þar sem Þróttarar voru einu skrefi á undan heimamönnum. Um miðja hrinu juku gestirnir enn frekar forskotið og komust í stöðuna 14-20 og þá orðið svolítið erfitt fyrir KA að klóra í bakkann. Þróttur vann hrinuna 18-25 og náðu þá að knýja fram aðra hrinu og héldu draumnum um titilinn á lífi.
Áfram héldu liðin að spila frábært blak og liðin sýndu það svo sannarlega af hverju þau eru að mætast hér í úrslitum. Stigin féllu mikið með KA mönnum og náðu þeir því upp ágætu forskoti þó skorpurnar séu langar og flottar. Þróttarar voru þó ekki búnir að gefast upp og jöfnuðu leikinn á ný í stöðunni 13-13. KA náðu aftur upp forskoti en Þróttarar neituðu að sleppa takinu og jöfnuðu enn á ný í stöðunni 21-21 og tekur þá KA leikhlé. Þróttur kemst svo yfir í stöðunni 23-24 og tekur KA þá sitt annað leikhlé í hrinunni. Spennan heldur áfram og í stöðunni 25-24 tekur Þróttur sitt fyrsta leikhlé í hrinunni og um leið og leikmennirnir stigu aftur á völlinn tóku þeir sitt annað leikhlé beint eftir. Það gékk þó ekki næginlega vel til að vinna hrinuna og unnu KA hrinuna 26-24 og unnu þar af leiðandi leikinn 3-1 og þar með Íslandsmeistarar árið 2025.

Að loknum leik var valin MVP (most valuable player) úrslitakeppninnar en það var leikmaður KA, Gísli Marteinn Baldvinsson en hann var með hvorki meira né minna en 18 stig í leiknum í kvöld. Við hjá blakfréttum óskum honum ásammt KA liðinu til hamingju með tilinn.