Erlendar fréttir

Odense Volleyball Danmarksmeistarar þriðja árið í röð

Miðvikudaginn 23. apríl mætti lið Odense Volleyball, þar sem Ævarr Freyr og Galdur Máni leika, Gentofte á útivelli í þriðja leik úrslitaeinvígisins um danska meistaratitilinn. Odense hafði unnið fyrstu tvo leikina og gat með sigri í Kaupmannahöfn tryggt sér titilinn.

Leikurinn hófst jafn með því að liðin skiptust á stigum, en Gentofte komst fljótlega í 12-8 forystu. Þeir héldu frumkvæðinu áfram og leiddu 24-22. Odense neitaði þó að gefa eftir og jafnaði í 24-24, en eftir spennandi lokasprett var það Gentofte sem tók hrinuna 28-26.

Önnur hrina var hnífjöfn frá upphafi til enda, þar sem liðin skoruðu til skiptis. Undir lokin voru það Odense sem sýndu festu og sigruðu 23-25.

Í þriðju hrinu náðu Odense snemma yfirhöndinni, leiddu 8-13 og héldu þeirri forystu út alla hrinuna. Þeir kláruðu hana með öruggum 17-25 sigri.

Fjórða hrina hófst á sama hátt, jöfn og spennandi, en Odense tóku fljótt frumkvæðið og leiddu 11-16. Gentofte reyndu að koma til baka og minnkuðu muninn í 21-23, en Odense hélt ró sinni, vann hrinuna 22-25 og tryggði sér þar með danska meistaratitilinn.

Þetta er þriðja árið í röð sem Odense Volleyball verða tvöfaldir meistarar, bæði bikar og Danmarksmeistarar.

Við óskum Ævarri, Galdri og liðsfélögum þeirra hjartanlega til hamingju með frábæran árangur!