Miðvikudaginn 16. apríl tóku Odense Volleyball á móti Gentofte á heimavelli sínum í öðrum leik úrslitaeinvígisins um Danmarksmeistaratitilinn. Í liði Odense eru meðal annars þeir Ævarr Freyr og Galdur Máni.
Fyrir leikinn var tilkynnt Dream Team úrvalsdeildar karla fyrir tímabilið 2024/25, og átti Odense nokkra fulltrúa í liði ársins:
- Sigurd Varming – Díó og MVP
- Ævarr Freyr Birgisson – Frelsingi
- Billy Greber – Uppspilari

Leikurinn byrjaði nokkuð jafn, en Gentofte náði fljótlega þriggja stiga forystu, 5-8. Liðin skiptust á að skora eftir það, en Gentofte hélt alltaf smá forskoti. Um miðja hrinu gáfu þeir í og leiddu 12-17. Odense minkuðu muninn hægt og rólega, en það dugði ekki til og Gentofte kláraði fyrstu hrinuna 21-25.
Önnur hrina hófst í svipuðum takti, en Odense fann fljótt taktinn og byggði upp 19-12 forystu. Þeir héldu pressunni út hrinuna og lokuðu henni nokkuð örugglega 25-18.
Gentofte svöruðu fyrir sig í þriðju hrinu og komust í 5-10 og síðar 7-13 forystu. Þrátt fyrir að liðin hafi skiptst á að skora eftir það, hélt Gentofte alltaf öruggu forskoti. Í stöðunni 20-24 virtist hrinan í höfn hjá gestunum, en þá tók Odense við sér, settu í lás og jöfnuðu í 24-24 lokuðu í framhaldi hrinunni 27-25.
Þrátt fyrir að hafa misst af hrinu sem virtist nánast örugg, mættu Gentofte ákveðnir til leiks í fjórðu hrinu. Hrinan var jafn fram til loka, en Odense hafði betur í lokasprettinum og tryggði sér hrinuna 25-22 og þar með sigur í leiknum 3-1.
Odense Volleyball leiðir því 2-0 í leikjum og á möguleika á að tryggja sér danska meistaratitilinn á útivelli miðvikudaginn 23. apríl, þegar liðin mætast í þriðja sinn, að þessu sinni á heimavelli Gentofte.