Fyrsti í úrslitum í Slóvakíu fór fram á heimavelli Slavia. Höllin var þétt setinn í Bratislava og var andrúmsloftið rafmagnað. VKP byrjaði betur og leiddi framan af þar til Slavia jafnaði 8-8 með vörn hjá liberonum sem fór beint yfir og endaði akkúrat á línunni hjá VKP. Stuðst var við challenge kerfið og náði Slavia að nýtta sér það þegar snerting átti sér stað sem dómarinn sá ekki. VKP náði þó aftur yfirhöndinni og leiddi 11-14 þegar Slavia tók leikhlé. Slavia gerði sér þá lítið fyrir og jafnaði aftur í 14-14. Slavia gaf lítið eftir og náðu þriggja stiga forustu 18-15 þegar VKP tók leikhlé. Slavia tók þá öll völd á hrinunni með góðum uppgjöfum og sterkum sóknum. Heimakonur kláruðu fyrstu hrinuna sannfærandi 25-16.
Slavia kom inn í aðra hrinu af sama krafti og þær enduðu þá fyrstu þar til VKP gaf virkilega í og komu sér í góða stöðu 5-9 þegar Slavia tók sitt fyrsta leikhlé. Slavia gaf þá aftur í og náði að jafna aftur hrinuna í stöðunni 11-11. Slavia héldu einbeittar áfram og leiddi 18-16 þegar VKP tók leikhlé. VKP gerði gríðarlega vel og jöfnuðu aftur hrinuna 23-23 og komust svo yfir 23-24. Slavia jafnaði aftur metinn með blokk 24-24 og við tók æsispennandi upphækkun sem endaði með blokkarstigi hjá Slavia sem kláraði aðra hrinuna 29-27.
Slavia byrjaði þriðju hrinuna vel, þjálfari VKP tók sitt fyrsta leikhlé í stöðunni 8-5 eftir tvö stig beint úr uppgjöf hjá Slavia. Heimakonur héldu sterkar áfram og leiddu 16-12 þegar þjálfari VKP tók sitt seinna leikhlé. Það hjálpaði ekki gestunum sem sáu ekki til sólar hvað eftir var af hrinunni sem Slavia kláraði örugglega 25-14. Slavia leiðir því 1-0 í úrslitum um meistaratitilinn í Slóvakíu, næstu leikur er á miðvikudaginn, 23. april.