Laugardaginn 19. apríl lék Habo Wolley sinn síðasta leik á tímabilinu þegar liðið mætti Vingåkers VBK á útivelli í öðrum leik um þriðja sætið í sænsku úrslitakeppninni. Vingåkers höfðu unnið fyrri leikinn 3-1 og því þurfti Habo að sigra 3-0 eða 3-1 til að knýja fram gullhrinu og halda voninni um bronsið á lífi.
Leikurinn hófst jafnt, þar sem að liðin skiptust á því að skroa. Í stöðunni 20-18 tóku heimamenn við sér, komust í 23-18, en Habo svaraði með sterkri syrpu og minnkaði muninn í 23-21. Vingåkers hélt þó haus og kláraði hrinuna 25-22.
Önnur hrina byrjaði á svipuðum nótum þar sem að hrinan var jöfn í byrjun. Vingåkers náðu fljótlega fjögurra stiga forskoti, 13-9, en Habo svaraði og jafnaði í 13-13. Heimamenn settu þá í annan gír, náðu 19-14 forystu og unnu hrinuna nokkuð örugglega 25-17.
Í þriðju hrinu mættu Vingåkers VBK ákveðnir og komust strax í 7-1 og síðar 16-8. Þeir héldu dampi allt til enda og unnu hrinuna 25-14 og þar með leikinn 3-0. Með sigrinum tryggði Vingåkers sér bronsverðlaunin í sænsku úrslitakeppninni.
Habo Wolley endaði því tímabilið í fjórða sæti. Hafsteinn Már átti afar öflugt tímabil með liðinu og stimplaði sig inn sem mikilvægur leikmaður í sínu liði.