Annar leikur í úrslitakeppninni í Slóvakíu fór fram í gær þar sem Matthildur og liðsfélagar hennar í Slavia sóttu VKP heim í Bratislava.
Fyrsta hrinan var mjög spennandi og stóðu leikar jafnir í stöðunni 14-14. VKP bætir í með góðum uppgjöfum og leiddi snögglega 17-14. Slavia jafnar með góðu smassi 19-19 og svo komust þær yfir 19-21. VKP jafnaði aftur hrinuna í 22-22 og eftir það hleyptu þær Slavia ekki lengra í hrinunni sem þær kláruðu 25-22.
Önnur hrina var jöfn framan af þar til VKP skoraði þrjú stig í röð og leiddi 11-8 þegar Slavia tók sitt fyrsta leikhlé. Slavia gerði sér lítið fyrir og jafnaði strax aftur í 11-11. VKP gaf þá aftur í og leiddu 15-12 þegar Slavia tók sitt annað leikhlé. VKP leiddi áfram þar til Slavia jafnaði aftur hrinuna í stöðunni 20-20. Áfram var jafnt í stöðunni 24-24 svo hrinan fór í upphækkun sem Slavia kláraði með blokk 25-27. Þá var jaft 1-1 í hrinum.
Slavia komu inn af krafti í þriðju hrinu og leiddu snemma 6-11 þegar VKP tók leikhlé. VKP komu einbeittar aftur inn á völlinn og gáfu í en Slavia var ekki lengi að taka við sér og leiddu áfram 10-15 þegar VKP tók sitt seinna leikhlé. Slavia gáfu ekkert eftir og kláruðu þriðju hrinuna sannfærandi 17-25.
Slavia byrjaði fjórðu hrinuna af krafti og leiddi framan af þar til VKP vaknaði og byrjuðu að keyra á forskotið hjá gestunum það til þær jöfnuðu og komust svo yfir 13-12 þegar Slavia tók leikhlé. Lítið gekk upp hjá gestunum meðan VKP héldu sterkar áfram og leiddu áfram 16-12. VKP gerðu vel og kláruðu fjórðu hrinuna 25-17.
VKP byrjaðu oddahrinuna af gríðarlegum krafti og leiddi 8-5 þegar liðinn skiptu um vallarhelminga. Þjálfarinn hjá Slavia gerði of mikið af breyttingum sem gerði eftirleikinn auðveldan fyrir VKP sem kláraði hrinuna 15-10 og jafnaði þar með í 1-1 í úrslitakeppninni.
Næsti leikur hjá Matthildi er næstkomandi laugardag kl 14:00 á íslenskum tíma og er hægt að horfa á hann hér: https://svf-web.dataproject.com/CompetitionHome.aspx?ID=68