Innlendar fréttir

Hamar tók á móti Vestra

Þann 25. október tók Hamar á móti Vestra í Unbroken deildinni, í efstu deild karla í blaki. 

Hamar vann fyrstu hrinuna örugglega 25-14. Önnur hrina var jöfn og spennandi og liðin skiptust á að hafa forystuna. Jafnt var í stöðunni 20-20 en þá settu Hamarsmenn í 5. gír og unnu hrinuna að lokum 25-21.

Þriðja hrina var einnig jöfn og spennandi. Hamarsmenn voru þó með frumkvæðið framan af og Vestramenn að elta. Vestri náði þó forystunni undir lokin, 25-24 og 26-25. Þrátt fyrir mikla baráttu heimamanna hafði Vestri sigur að lokum eftir upphækkun ,31-29.

Í fjórðu hrinu var aftur á móti ljóst að Hamarsmenn ætluðu ekki í oddahrinu. Þeir voru með frumkvæðið alla hrinuna og unnu hana að lokum örugglega 25-16 og leikinn 3-1.

Stigahæstir í liði Hamars voru Tamas Magyar og Tomek Leik með 17 stig en í Vestra var það Marcin Grasza með 16 stig.