Uncategorised

Matthildur með annan sigur

Matthildur Einarsdóttir og liðsfélagar hennar í Slavia tóku á móti UNIZA Zilina í Slóvakísku úrvalsdeildinni í gær. Heimakonur byrjuðu af krafti og náðu snemma yfirhöndinni þegar Zilina tók leikhlé í stöðunni 12-7 fyrir Slavia. Gestirnir áttu fá svör við góðu spili Slavia þar sem Matthildur dreyfði spilinu vel. Heimakonur kláruðu fyrstu hrinuna 25-18.

Önnur hrinan byrjaði vel fyrir gestina sem leiddu framan af með nokkrum stigum en Slavia hleypti þeim aldrei langt frá sér og jöfnuðu svo hrinuna 12-12. Hávörninn hjá heimakonum hrökk í gang og tók Zilina leikhlé þegar Slavia var komið 15-12 yfir. Fór þá allt að smella saman hjá heimakonum sem kláruðu aðra hrinuna með blokk 25-18.

heimakonur komu einbeittar inn í þriðju hrinuna og náðu snemma góðum tökum á henni þar sem þær leiddu 17-11. Zilina átti góða spretti inn á milli en Slavia héldu sterkar út og kláruðu hrinuna 25-19 og þar með unnu þær annan leikinn í röð 3-0.

Næsti leikur hjá Matthildi er 12. Okt gegn UCM Trnava og hægt er að fylgjast með leikunum í Slóvakísku úrvalsdeildinni hér: https://svf-web.dataproject.com/CompetitionHome.aspx?ID=68

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *