Uncategorised

Tékkneski bikarinn byrjaði í dag

Screenshot

Přerov mætti Sternberk þann 2. október í annari umferð um Tékkneska bikarinn, þetta voru 16 liða úrslit og dettur liðið úr keppni sem tapar.

Þegar leikurinn byrjaði gekk Přerov strax vel og tóku gott forskot í byrjun leiks en náði Sternberk þeim fljótlega. Hrinan var mjög jöfn og náði Sternberk forskoti í 18 – 19. En Přerov gaf þá í og vann hrinuna 25 – 23.

Přerov byrjaði aðra hrinu mjög vel og voru sterkar út alla hrinuna. Sternberk náði aldrei að koma sér inn í hrinuna og vann Přerov 25 – 18.

Sternberk byrjaði þriðju hrinu sterkari og voru yfir í fyrri hluta hrinunnar en í stöðunni 10 – 15 tók þjálfari Přerov leikhlé og eftir það náði Přerov yfir og héldu því út hrinuna og unnu hana 25 – 22.

Přerov vann því leikinn 3 – 0 og eru komnar áfram í 8 liða úrslit í bikarnum.