Fréttir - Landsliðið

Láttu sjá þig í Digranesi um helgina

A-landsliðin okkar, bæði karla og kvenna eru að keppa í fyrsta skipti í Silver League. Fyrstu leikir fara fram í Digranesi um helgina.

Stelpurnar byrja á morgun, 17. maí klukkan 16:00 á móti Lettlandi og eru strákarnir eftir þeim klukkan 20:00 á móti Færeyjum.

Íslensku liðin eiga svo aftur leik á sunnudaginn og þar eiga strákarnir fyrri leik klukkan 15:00 á móti Ísrael, af öryggisástæðum verður þessi leikur fyrir luktum dyrum. Stelpurnar mæta svo Ungverjalandi klukkan 19:00.

Eins og er lítur ekki út fyrir að það verði streymi og því þurfa allir að gera sér ferð í Digranes um helgina. SJÁUMST!