Erlendar fréttir

Hvidovre – Odense Volleyball

Miðvikudaginn 9. október tóku Odense Volleyball þar sem að þeir Ævarr Freyr og Galdur Máni spila, ferð til Kaupmannahafnar þar sem að þeir mættu Hvidovre.

Fyrsta hrina byrjaði jöfn en um miðja hrinu gáfu Odense Volleyball í og komu sér í 10-15 forystu. Hvidovre náðu að halda sér inni í hrinunni en Odense Volleyball voru sterkari og sigruðu hrinuna 20-25.

Önnur hrina var afar jöfn þar sem að liðin skiptust á því að skora. Undir lok hrinunnar settu Odense Volleyball í annan gír og lokuðu hrinunni 21-25.

Þriðja hrina var svipuð þeirri annari þar sem að liðin skiptust á því að skora. Í lok hrinunnar gáfu þó Odense Volleyball í og sigruðu hrinuna 18-25 og þar með leikinn 0-3.

Stigahæsti leikmaður Odense Volleyball var Sigurd Varming með 22 stig.

Næsti leikur Odense Volleyball er laugardaginn 19. október þar sem að þeir munu aftur halda til Kaupmannahafnar og mæta Amager.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *