Föstudaginn 22. nóvember fengu Völsungur KK Vestri í heimsókn.
Völsungur komu sterkir inn í leikinn og leiddu 6-1. Völsungur voru í gír og héldu forystunni og stóðu leikar í 12-4. Vestri gáfu í og náðu hægt og rólega að minka muninn. Völsungur voru þó komnir með stórt forskot sem gerði það erfitt fyrir Vestra að jafna. Völsungur sigruðu hrinuna 25-18.
Vestri komu tilbúnari inn í aðra hrinuna og byrjaði hrinan jöfn. Liðin voru hnífjöfn og skiptust á því að skora. Undir lok hrinunnar gáfu Völsungur í og lokuðu hrinunni 25-20.
Völsungur voru í stuði og komu sterkir inn í þriðju hrinu og leiddu 9-2. Völsungur héldu áfram yfirhöndinni og leiddu 16-7. Vestri voru í vandræðum með heimamennina og sigruðu Völsungur hrinuna sannfærandi 25-13 og þar með leikinn 3-0.